GeForce RTX
50 Series fartölvur
Breyta leiknum
Keyrð af NVIDIA Blackwell færa GeForce RTX™ 50 Series fartölvuskjákortin þér eiginleika sem breyta leiknum fyrir leikjaspilun og skapandi vinnu. Búið gífurlegu gervigreindarafli gera RTX 50 Series kortin þér kleipt að upplifa nýjungar og grafík á hærra stigi. Margfaldaðu afköst með NVIDIA DLSS 4, framkallaðu myndir á áður óséðum hraða og hleyptu sköpun þinni úr læðingi með NVIDIA Studio. Allt þetta í örþunnum og langlífum fartölvum.
RTX 50 Series fartölvur
NVIDIA Blackwell Arkitektúr
Hágæða leikjaspilun og sköpun

5. kynslóðar Tensor kjarnar
Hámörkuð gervigreindarafköst með FP4 og DLSS 4
Nýir fjölvinnslukjarnar fyrir streymi
Bestað fyrir tauganets skugga (e. neural shaders)
4. kynslóðar Ray Tracing kjarnar
Byggt fyrir Mega Geometry

Gervigreindarbætt afköst
NVIDIA DLSS 4

Svartími
sem sigrar
NVIDIA Reflex 2

Raunhyggin
grafík
Full Ray Tracing

Stafrænt fólk og gervigreindar þjónar
NVIDIA ACE

Hraðaðu á sköpun þinni
NVIDIA Studio

Gervigreindarbætt myndgæði
NVIDIA Broadcast

Afköst og
áreiðanleiki
NVIDIA app

Hátindur leikjaskjátækni
NVIDIA G-SYNC
RTX. It's on.
Hátindur í Ray Tracing og gervigreind
RTX er háþróaðasta tæknin fyrir ray tracing og tauganets umskráningu (e. neural rendering) sem eru að gjörbylta því hvernig við leikum og sköpum. Yfir 700 leikir og forrit nota RTX til að skila raunverulegri grafík og ótrúlegum hraða með gervigreindareiginleikum í fremstu röð líkt og DLSS Multi Frame Generation.
NVIDIA DLSS 4
Ofsa hraði.
Rosa myndgæði.
Keyrt af gervigreind.
DLSS er byltingarkennt kerfi tauganeta umskráningar (e.neural rendering) sem notast við gervigreind til að auka rammatíðni, minnka biðtíma og bæta myndgæði. DLSS 4 er nýjasta viðbótin og henni fylgir fjölrammaframköllun (e. Multi Frame Generation), betrumbætt geisla endurheimt (e. Ray Reconstruction) og ofurupplausn (e. Super Resolution) sem keyrt er af GeForce RTX™ 50 Series skjákortum og 5. kynslóðar Tensor kjörnum. DLSS á GeForce RTX er besta leiðin til að spila, sem bakkað er af NVIDIA AI ofurtölvu í skýinu sem bætir stöðugt afkastagetu tölvunnar þinnar.
Full Ray Tracing með tauganets umskráningu
Raunhyggja sem breytir leiknum
NVIDIA Blackwell arkítektúrinn leysir úr læðingi raunhyggju sem breytir leiknum með full ray tracing. Upplifðu myndgæði á áður óséðum hraða sem keyrt er af GeForce RTX 50 Series með 4. kynslóðar RT kjörnum og nýrri tauganets umskráningartækni sem keyrð er af 5. kynslóðar Tensor kjörnum.

NVIDIA Reflex 2
Kepptu á ofsa hraða
Reflex tæknin bestar vinnslu á grafík fyrir hágæða svörun, hraðar á því að ná skotmörkum, veitir skjótari viðbragðstíma og bætir nákvæmni í miði í keppnisleikjum. Reflex 2 kynnir til leiks Frame Warp, sem minnkar biðtíma enn frekar miðað við síðasta inntak frá músinni.
NVIDIA Blackwell Max-Q
Bestað afl og afköst
Max-Q er hannað frá grunni fyrir hámarks skilvirkn sem skilar risastökki í afköstum og rafhlöðuendingu.
RTX AI tölvur
NVIDIA keyrir gervigreind heimsins. Og þína.
Uppfærðu í gervigreind í fremstu röð með NVIDIA GeForce RTX™ skjákortum og hraðaðu á leikjaspilun, sköpun, afköstum og þróun. Þökk sé innbyggðum gervigreindar kjörnum færð þú heimsleiðandi gervigreindartækni beint í Windows tölvuna þína.
Skapandi vinna
Vertu (gervi)greindari í þinni sköpun
NVIDIA Studio gerir þig (gervi)greindari í sköpun. GeForce RTX 50 Series skjákortin leysa úr læðingi áður óþekkt afköst í myndbandavinnslu, þrívíddarvinnslu og grafískri hönnun. Upplifðu RTX hröðun í helstu sköpunarforritum, með markaðsleiðandi NVIDIA Studio driverum sem eru hannaðir og stöðugt uppfærðir til að veita hámarks stöðugleika ásamt samansafni tóla sem beisla krafta RTX fyrir gervigreindarbætt vinnuflæði.
NVIDIA Broadcast
Heimastúdíó keyrt af gervigreind
Taktu beinstreymið, símtöl og myndsímtöl á næsta stig með gervigreindarbættri rödd og mynd. Fjarlægðu truflandi bakgrunnshljóð, veldu þinn bakgrunn og meira með einum takka.
RTX Video
Uppfærðu hvernig þú horfir á myndbönd
RTX Video ofurskerpa og HDR notar gervigreind til að breyta myndböndum þínum í Chroma, Edge eða Firefox og skerpir sjálfvirkt smáatriði og tekur burt truflanir. Njóttu glæsilegrar skerpu í allt að 4K.
RTX Remix
Endurupplifðu klassíska leiki
RTX Remix veitir hönnuðum möguleikann á að taka eiginleika (e. assets) úr leikjum og bæta þá með gervigreindartólum til að skapa glæsilega RTX endurgerðir af leikjum með ray tracing og DLSS.
Myndbandavinnsla
Þegar hraði mætir sköpunargleði
Beislaðu krafta 9. kysnlóðar NVIDIA Encoder (NVENC) fyrir ógnarhraða myndbandaframleiðslu og gervigreindarkeyrða effekta í DaVinci Resolve, Adobe Premiere Pro o.fl.
Lærðu af ofurkrafti
Öflugar NVIDIA GeForce RTX 50 Series fartölvur hraða á öllum helstu forritum til náms í verkfræði, arkitektúr, tölvunarfræði, tölfræði, hagfræði og fleiri fögum. Þetta þýðir þægilegri þrívíddarvinnsla og líkanagerð, hraðari gervigreindarþjálfun og hermar ásamt nákvæmari vélnáms (e. machine learning) líkönum. Ásamt þessu, með aðgangi að skapandi tólum og tækni frá NVIDIA Studio, Max-Q tækni fyrir lengri rafhlöðuendingu, hljóðeinangrun og fleira, færð þú hina fullkomnu fartölvu fyrir námið þitt.
Auka eiginleikar og kostir
Game Ready Stúdíó driverar
GeForce Game Ready og Stúdíó driverar skila þér bestu mögulegu upplifun á þínum uppáhalds leikjum. Þeir eru fínstilltir í samvinnu við framleiðendur leikja og ítarlega prófaðir yfir þúsundir prófana á vélbúnaði fyrir hámarks afköst og áreiðanleika.
NVIDIA G-SYNC
NVIDIA G-SYNC® er samansafn skjátækni á hæsta stigi. Safnið býður upp á bættan skýrleika á hreyfingu, býr til mjúkar hreyfingar og truflanalausa innlifun í leiki með afspyrnuhraðri rammatíðni og fleira.


© 2025 NVIDIA Corporation. NVIDIA, the NVIDIA logo, GeForce, GeForce Experience, GeForce RTX, and G-SYNC are registered trademarks
and/or trademarks of NVIDIA Corporation in the United States and other countries. All other trademarks and copyrights are the property
of their respective owners.