Skip to content
staerri heimilistaekjadeild opnar 1 oktober
Heimabíó Heimilistæki Tilboð

Ný og stærri heimilistækjadeild opnar hjá Tölvutek

Jóhann Jóhannsson
Jóhann Jóhannsson

Frábær opnunartilboð hefjast 1. október

Í yfir 20 ár hafa Íslendingar leitað til Tölvutek eftir tölvum, leikjabúnaði og tæknivörum. En undanfarið höfum við markvisst byggt upp sífellt stærra úrval fyrir heimilið og þann 1. október tökum við stærsta skrefið hingað til.

Við opnum nýja og stærri heimilistækjadeild þar sem þú finnur allt frá Google TV sjónvörpum og Dolby Atmos hljóðkerfum yfir í Air Fryers, kaffivélar, ryksugur, þvottavélar og stór heimilistæki.

Í tilefni opnunarinnar verða yfir 500 vörur á opnunartilboði með allt að 50% afslætti, ný vörumerki bætast við úrvalið og spennandi nýjungar munu halda áfram að berast næstu vikurnar.

10 opnunartilboð sem þú vilt ekki missa af

Flettu í gegn til að sjá 10 frábær opnunartilboð ⏩

[1/10] 55" QLED snjallsjónvarp frá Tesla með frábærri litadýpt og Dolby Vision sem tryggir skarpa mynd og frábæra kvikmyndaupplifun.
[2/10]  Þetta öfluga 5.1.2 rása hljóðkerfi skilar sannkölluðu Dolby Atmos umlykjandi hljóði með þráðlausum bassahátalara og þráðlausum afturhátölurum sem fylgja með.
[3/10]  Eitt tæki, svo margir möguleikar! Notaðu Tesla eldhúsvélmennið þitt til að blanda og hræra hráefni, búa til deig eða jafnvel hakka kjöt.
[4/10]  Fjölnota Rotisserie loftsteikingarpottur sem gerir þér kleift að elda hollan mat án þess að fórna bragði og spara orku.
[5/10]  7in1 Espresso kaffivélin er fjölhæf og öflug kaffivél sem gerir þér kleift að útbúa fjölbreytta kaffidrykki á einfaldan hátt heima.
[6/10] Lítill en öflugur Dyson Supersonic 5in1 hárblásari með digital V9 1700W mótor sem snýst allt að 110.000 snúninga á mínútu.
[7/10] Monna Lisa er hárblásari búinn nýstárlegri tækni eins og BLDC mótor af nýjustu kynslóð, sem getur framkallað háorku og háhraða loftstreymi fyrir hraðari þurrkun og langvarandi stílingu.
[8/10] Öflug og þægileg þráðlaus ryksuga frá Dyson sem hentar mjög vel fyrir dagleg þrif á heimilinu.
[9/10] Bosch Serie 8 bakstursofn með TFT skjá og Air Fry eiginleika á ótrúlegu verði.
[10/10] Glæsilegur 159cm ísskápur frá Tesla með frystihólfi. 203+42L hentar einstaklega vel á smærri heimili.

 

Nú geturðu fundið nánast allt fyrir heimilið á einum stað

Heimili nútímans snýst um miklu meira en eina tölvu eða eitt sjónvarp.

Við horfum á kvikmyndir á risaskjám, hlustum á tónlist í stofunni, eldum í Air Fryer, fáum okkur kaffibolla á morgnana og treystum á ryksugur, þvottavélar og uppþvottavélar á hverjum degi.

Þess vegna höfum við byggt upp nýja deild sem nær yfir langt fleiri þarfir heimilisins en áður. Hvort sem þú ert að flytja í fyrstu íbúðina, gera upp eldhúsið eða uppfæra stofuna finnur þú nú meira úrval hjá Tölvutek en nokkru sinni fyrr.

🛋️ STOFAN


Sjónvörp, hljóð og heimabíóupplifun í nýjum hæðum

Ein stærsta breytingin í nýju heimilistækjadeildinni er hið aukna úrval af afþreyingarlausnum fyrir heimilið. Hvort sem þú ert að leita að nýju sjónvarpi fyrir fjölskylduna, uppfæra hljóðkerfið eða skapa alvöru heimabíóupplifun finnur þú nú mun meira úrval hjá Tölvutek en áður.

✨ Hápunktar

🔥 Opnunartilboð á sjónvörpum: Google TV sjónvörp frá Tesla og Metz með allt að 50.000 kr. afslætti
🔊 Hljóðstangir á betra verði: Samsung og Yamaha hljóðstangir með allt að 20% afslætti og lausnir fyrir öll sjónvörp
🎬 Heimabíó á einum stað: Skjávarpar, veggfestingar, hljóðstangir og fylgihlutir sem gera kvöldið aðeins betra
🆕 Nýtt í Tölvutek: Úrval af skjávörpum, stafrænum myndarömmum, sjónvarpstölvum, retro sjónvarpsleikjatölvum og öðrum afþreyingarvörum sem ekki hafa áður verið hluti af úrvalinu
🚀 Væntanlegt: Thonet & Vander hljóðvörur og heimabíólausnir lenda í byrjun nóvember

Í dag snýst sjónvarpsupplifun um miklu meira en skjástærð. Fólk leitar eftir Google TV, QLED myndgæðum, Dolby Vision litavinnslu og Dolby Audio eða Atmos hljóði sem sameinar mynd og hljóð í eina heild.

Úrvalið okkar spannar allt frá hagkvæmum 43" sjónvörpum upp í glæsilega 86" stórskjái frá Tesla og Metz, með valkostum fyrir allt frá fyrsta sjónvarpinu upp í fullbúið heimabíó.

🔥 Allt fyrir bíómyndina, leikinn eða sjónvarpsseríuna á einum stað – frá sjónvörpum og hljóðstöngum upp í fullbúna heimabíóupplifun.

Sterkara hljóðúrval er einnig stór hluti af opnuninni. Hljóðstangir frá Samsung og Yamaha gera þér kleift að uppfæra sjónvarpsupplifunina á örfáum mínútum með skýrari röddum, meiri krafti og betra rýmishljóði (e. surround sound).

Á næstu vikum mun svo ný hljóðlína frá Thonet & Vander bætast við úrvalið með hljóðstöngum, hátölurum og öðrum hljóðlausnum.

Við bætum einnig við skjávörpum, sjónvarpsveggfestingum og fjölbreyttum fylgihlutum sem gera þér kleift að byggja upp heildarlausn fyrir stofuna á einum stað.

Flettu í gegnum myndirnar ⏩

[1/2] Úrval af Tesla og Metz sjónvörpum á opnunartilboðum
Lifestyle rein gen2

[2/2] Glæsilegar nýjungar frá Thonet & Vander væntanlegar í byrjun nóvember


🍳 ELDHÚSIÐ


Air Fryer, espresso og eldhústæki fyrir hversdagslífið

Við höfum gífurlega stórt úrval af eldhústækjum í nýju heimilistækjadeildinni sem gera matargerð, bakstur og kaffigerð einfaldari og skemmtilegri. Hvort sem þú ert að leita að fyrsta Air Fryer pottinum, nýrri kaffivél eða næsta tækinu í draumaeldhúsið finnur þú nú mun meira úrval hjá Tölvutek en áður.

✨ Hápunktar

🍟 Air Fryer fyrir hvert heimili: Loftsteikingarpottar frá aðeins 7.990 kr. og fjölbreytt úrval frá Ninja, Girmi, Melchioni, Tesla og G3 Ferrari
🤖 Opnunarbomban: Tesla 3in1 hrærivél með blandara og hakkavél á 43% afslætti – aðeins 19.990 kr.
☕ Kaffihúsa stemming heima: Kaffivélar frá 2.994 kr., Nespresso vélar frá 9.990 kr. og espresso vélar með mjólkurflóara á sérvöldum tilboðum
🆕 Nýtt í Tölvutek: Melchioni, ítalskt hágæða merki í smærri heimilistækjum en einnig voru að lenda frá þeim Vintage Retro ísskápar í 3 litum og 2 stærðum á frábæru verði.
🎁 Smærri tækin á stórum afslætti: Resto pottar, pönnur og eldhúsáhöld á allt að 50% afslætti, Franskar kaffipressur frá 1.995 kr., hraðsuðukatlar frá 3.995 kr., ferðablandarar frá 4.995 kr. og svo miklu meira.

🚀 Væntanlegt: SHARP heimilistæki eru væntanleg seinna í október og bætist þá við glæsilegt úrval frá Bosch og Tesla sem var að lenda í meira magni en áður.

Loftsteikingarpottar (e. air fryers) hafa á örfáum árum orðið ein vinsælasta eldhúsvara landsins og því höfum við stækkað úrvalið verulega. Nú getur þú valið úr fjölbreyttum lausnum frá þekktum framleiðendum fyrir allt frá einföldum kvöldmat upp í fjölskyldumáltíðir.

Kaffideildin hefur einnig tekið stórt stökk fram á við. Hvort sem þú vilt fljótlegt hylkjakaffi á morgnana eða fullbúna espresso upplifun með froðumjólk og nýmöluðum baunum finnur þú nú fleiri valkosti en áður.

☕ Frá morgunkaffinu til kvöldmatarins – nýja eldhúsdeildin sameinar vinsælustu eldhústækin á einum stað.

Stækkunin snýst þó ekki aðeins um rafmagnstækin sjálf heldur einnig allt í kringum eldhúsið. Nú bjóðum við einnig upp á úrval af Resto pottum, pönnum og eldhúsáhöldum sem hafa þegar vakið mikla athygli fyrir fallega hönnun og hagstætt verð, auk fjölbreytts úrvals af fylgihlutum sem hjálpa til við að gera matargerðina einfaldari.

Melchioni, ítalska vörumerkið sem er nýkomið í Tölvutek, spilar stórt hlutverk í nýju deildinni. Auk Air Fryer potta, kaffivéla og smærri eldhústækja hefur Melchioni einnig komið með glæsilega Retro kæli- og frystiskápa í nokkrum litum og stærðum sem setja skemmtilegan svip á eldhúsið, sumarbústaðinn eða skrifstofuna.

Þróunin heldur áfram næstu vikur. Seinna í október mun SHARP bætast við með nýju úrvali af þvottavélum, uppþvottavélum, kæli- og frystiskápum og öðrum stærri heimilistækjum, sem styrkir enn frekar markmið okkar um að gera Tölvutek að áfangastað fyrir allt heimilið.

Flettu í gegnum myndirnar ⏩

[1/4]  Tesla 3in1 hrærivélin fæst nú á 43% afslætti á aðeins 19.990kr. Hrærivél, blandari og hakkavél allt einu tæki.

[2/4] Stórir afslættir af smærri tækjum og búsáhöldum eins og þessum geggjuðu vörum frá Resto Kitchenware.

[3/4] Úrval loftsteikingarpotta með allt að 40% afslætti frá aðeins 7.990. Frá gæða merkjum á borð við Ninja, G3Ferrari og hinu nýja Melchioni.

[4/4] Gerðu alvöru kaffihúsabolla heima hjá þér með glæsilegum kaffilausnum frá Ninja, Melchioni, Haws og G3Ferrari á opnunartilboðum.


🧹 HEIMILISÞRIFIN


Snjallari þrif, minni fyrirhöfn og meira frelsi

Heimilisþrif hafa tekið miklum breytingum á síðustu árum og tæknin sér nú um sífellt stærri hluta vinnunnar. Í nýju heimilistækjadeildinni finnur þú stærra úrval af snúrulausum ryksugum, ryksuguróbotum og öðrum þrifalausnum, frá nokkrum af vinsælustu framleiðendum heims.

✨ Hápunktar

🧹 Snúrulausar ryksugur á opnunartilboðum: Lausnir frá Melchioni, Tesla, Shark, Bosch og Dyson frá aðeins 9.990 kr.
🤖 Láttu vélmennið sjá um verkið: Roborock ryksuguróbotar frá 31.992 kr. og Dreame snjalllausnir fyrir sjálfvirk heimilisþrif
⭐ Vinsælar gæðavörur: Dyson V8 og Shark Detect Pro á sérvöldum opnunarverðum
🆕 Nýtt og stærra úrval: Fleiri ryksuguróbota og snúrulausar lausnir en áður hafa verið í boði hjá Tölvutek
🏠 Fyrir öll heimili: Hvort sem þú býrð í lítilli íbúð eða stóru fjölskylduheimili finnur þú lausn sem passar þínum þörfum

Snúrulausar ryksugur hafa á skömmum tíma orðið fyrsti kostur margra heimila. Þær eru léttar, þægilegar í notkun og auðvelda dagleg þrif án þess að þurfa að glíma við snúrur eða fyrirferðarmikinn búnað.

Ryksuguróbotar halda svo áfram að verða snjallari. Nýjustu kynslóðirnar frá Roborock og Dreame kortleggja heimilið, forðast hindranir og geta séð um stóran hluta daglegra þrifa á meðan þú sinnir öðru.

🧹 Leyfðu tækninni að sjá um rykið – og notaðu tímann í eitthvað skemmtilegra.

Í nýju deildinni finnur þú allt frá hagkvæmum lausnum fyrir fyrstu íbúðina upp í öflug þrifakerfi frá Shark, Dyson, Bosch og Roborock sem auðvelda heimilishaldið til muna.

Flettu í gegnum myndirnar ⏩

[1/2] Skaftryksugur frá gæða merkjum á borð Við Dyson, Shark, Melchioni, Tesla og Bosch á opnunartilboðum.
[2/2] Láttu Roborock snjallryksuguvélmennið um heimilisþrifin meðan þú sinnir öðrum erindum.

✨ ÚTLIT


Vinsælustu hártækin á einum stað

Heimilistæki snúast ekki lengur eingöngu um eldhúsið eða heimilisþrifin. Sífellt fleiri leita að lausnum sem stytta morgunrútínuna, auðvelda hármótun og skila faglegum árangri heima við. Þess vegna hefur úrval snyrti- og hártækja stækkað verulega í nýju heimilistækjadeildinni.

✨ Hárpunktar

🔥 Opnunartilboð á hártækjum: Hárblásarar, sléttujárn og hármótunartæki með allt að 50% afslætti
💨 Frá aðeins 1.990 kr.: Hárblásarar í úrvali frá G3 Ferrari, Tesla, BaByliss (væntanlegt) og fleiri framleiðendum

💎 Premium vörumerki: Shark og Dyson hármótunartæki fyrir þau sem vilja nýjustu tæknina og faglegan árangur heima. Meira Dyson væntanlegt 2. vikuna í október.

⭐ Mest spennandi tilboðin: Dyson hárblásarar á áður óséðu verði frá 49.990 með allt að 30% afslætti og vinsælt 5-in-1 hármótunarsett á 35% afslætti á 12.993 kr.
🆕 Meira úrval en áður: Hárblásarar, sléttujárn, krullujárn og fjölhæf hármótunartæki á einum stað

Undanfarin ár hafa hártæki þróast hratt og ný kynslóð hárblásara og hármótunartækja býður upp á hraðari þurrkun, betri hitastýringu og fjölbreyttari möguleika til að skapa mismunandi útlit á skemmri tíma.

Þess vegna höfum við lagt aukna áherslu á þennan vöruflokk með lausnum fyrir alla verðflokka. Hvort sem þú ert að leita að einföldum hárblásara fyrir daglega notkun eða fjölhæfu hármótunartæki með mörgum aukahlutum finnur þú nú mun meira úrval hjá Tölvutek en áður.

✨ Frá daglegri hárumhirðu upp í fullkomna hármótun – vinsælustu hártækin á einum stað.

Í nýju deildinni finnur þú allt frá hagkvæmum lausnum frá Tesla og G3 Ferrari upp í eftirsótt tæki frá Shark og Dyson sem hafa notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum og meðal fagfólks.

Hvort sem markmiðið er hraðari morgnar, meiri þægindi eða nýtt útlit er útlitsdeildin einn af þeim flokkum sem hefur stækkað mest með opnun nýju heimilistækjadeildarinnar.

Flettu í gegnum myndirnar ⏩

[1/2] Premium vörumerki á borð við Dyson á áður óséðu verði frá 49.990 með allt að 30% afslætti.
[2/2] Hagkvæmari en stórgóðar lausnir frá G3Ferrari, Tesla, Babyliss og fleirum

🏠 STÆRRI HEIMILISTÆKIN


Þvottahús, eldhús og heimilistæki fyrir framtíðarheimilið

Við höfum aukið áherslu á gott úrval af stærri heimilistækjum með stækkun heimilistækjadeildarinnar. Hvort sem þú ert að flytja í nýtt húsnæði, endurnýja eldhúsið eða uppfæra þvottahúsið finnur þú nú mun breiðara úrval af stórum heimilistækjum hjá Tölvutek en áður.

✨ Hápunktar

🧺 Þvottavélar frá 39.992 kr.: Tesla, Bosch og  SHARP (væntanlegt) með fjölbreytt úrval fyrir heimili af öllum stærðum
🔥 Stærsta opnunartilboðið: Bosch Serie 8 veggofn með AirFry á 38% afslætti – aðeins 99.990 kr.
❄️ Kæli- og frystiskápar á betra verði: Frá aðeins 39.990 kr. með allt að 33% afslætti á völdum gerðum og nýir Retro skápar frá Melchioni
🍳 Eldhúsið uppfært: Spanhelluborð, veggofnar og önnur innbyggð tæki frá Bosch á opnunartilboðum
🚀 Væntanlegt: SHARP heimilistæki bætast við úrvalið síðar í haust með kynningartilboðum á þvottavélum, uppþvottavélum og ísskápum

Bosch verður eitt af lykilvörumerkjum deildarinnar með breitt úrval af þvottavélum, þurrkurum, uppþvottavélum, kælitækjum, spanhelluborðum og ofnum. Fyrir þau sem vilja vönduð heimilistæki með góðri ábyrgð og nútímalegum eiginleikum verður úrvalið sterkara en nokkru sinni fyrr.

Við bætum einnig við fjölbreyttum lausnum frá Tesla og Melchioni sem bjóða upp á hagkvæma kosti fyrir fyrstu íbúðina, sumarhúsið eða þá sem vilja endurnýja heimilið án þess að fara yfir fjárhagsáætlunina.

🏠 Frá fyrsta ísskápnum upp í fullbúið draumaeldhús – nú finnur þú stærri heimilistækin hjá Tölvutek.

Á næstu vikum mun svo ný lína af SHARP heimilistækjum bætast við með þvottavélum, uppþvottavélum, kæli- og frystiskápum og eldavélum sem auka enn frekar breiddina í þessum flokki.

Þetta er stórt skref fyrir Tölvutek og gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini sem eru að byggja, flytja, endurnýja eða einfaldlega leita að betri lausnum fyrir heimilið sitt.

Flettu í gegnum myndirnar ⏩

[1/3] Við bætum úrvalið af stórum heimilistækjum frá Bosch og Tesla. Þ.á.m. geturðu fengið þennan Bosch ofn með 60.000kr afslætti!
[2/3] Skemmtilegir vintage ísskápar frá Melchioni á opnunartilboði
sharp
[3/3] Á næstu vikum munum við bæta SHARP heimilistækjum við vörulínuna okkar svo endilega fylgstu með!

Þetta er bara byrjunin

Opnun nýju heimilistækjadeildarinnar markar upphaf nýs kafla hjá Tölvutek.

Á næstu vikum bætast við ný vörumerki, nýjar vörulínur og fleiri opnunartilboð. Með komu Sharp, Thonet & Vander og Melchioni ásamt stórauknu úrvali frá Bosch, Tesla, Ninja, Shark, Dyson, Samsung og Metz hefur úrvalið aldrei verið stærra.

Hvort sem þú ert að leita að nýju Google TV sjónvarpi, hljóðstöng, Air Fryer, espresso vél, ryksugu eða þvottavél er þetta kjörið tækifæri til að skoða nýju deildina.

Við hlökkum til að taka á móti þér frá 1. október í nýrri og stærri heimilistækjadeild Tölvutek með yfir 500 tilboð á allt að 50% afslætti 🚀

Share this post